Ólympíumeistarinn Justin Rose er langefstur að loknum fyrsta keppnisdegi á Masters-mótinu í golfi.
Mótið er fyrsta risamót ársins hjá körlunum og fer ávallt fram á hinum glæsilega Augusta National-velli. Ekki hafa allir lokið leik á fyrsta keppnisdegi en ljóst er orðið að enginn mun komast nálægt Rose á þessum fyrstu 18 holum.
Rose skilaði inn skori upp á 65 högg og er á sjö undir pari. Er hann með fjögurra högga foskot á Brian Harman og Hideki Matsuyama. Framan af var ekkert sem benti til þess að Justin Rose myndi eiga sérlega góðan hring. Eftir sjö holur var hann á tveimur höggum yfir pari og hafði ekki fengið fugl. En þá hrökk Englendingurinn í gang og lék næstu tíu holur á níu undir pari.
Áhugafólk um Masters skyldi forðast að horfa of mikið í Mastersmótið í fyrra. Allt aðrar aðstæður voru í nóvember og flatirnar mun mýkri. Völlurinn var á allan hátt mun auðveldari í nóvember enda var skorið í mótinu gott.
Harman og Matsuyama eru næstir á eftir Rose á 69 höggum. Enginn þessara þriggja hafa unnið Masters og Rose er sá eini þeirra sem unnið hefur risamót en hann vann Opna bandaríska meistaramótið árið 2013. Rose hefur tvívegis hafnað í 2. sæti á Masters og oftar en einu sinni verið efstur að loknum fyrsta keppnisdegi frá árinu 2004.
Ellefu kylfingar hafa lokið leik undir pari. Kylfingar á borð við Justin Thomas, Jordan Spieth, Collin Morikawa og Bryson DeChambeau eru enn úti á velli. Enginn þeirra mun skila inn frábæru skori en Spieth er -1 eftir 16 holur. Morikawa +1 eftir 17, Thomas +1 eftir 17 og DeChambeau +4 eftir 17.
Skor hjá völdum þekktum kylfingum sem lokið hafa leik:
-2 Webb Simpson
-2 Patrick Reed
-1 Si Woo Kim
-1 Shane Lowry
-1 Tyrrell Hatton
Par Xander Schauffele
Par Jon Rahm
+1 Henrik Stenson
+1 Viktor Hovland
+1 Paul Casey
+1 Gary Woodland
+2 Steward Cink
+2 Bernhard Langer
+2 Ian Poulter
+2 Bubba Watson
+2 Brooks Koepka
+2 Dustin Johnson
+2 Francesco Molinari
+2 Tommy Fleetwood
+3 Jose Maria Olazabal
+3 Phil Mickelson
+4 Danny Willet
+4 Sergio Garcia
+4 Rory McIlroy
+5 Jason Day
+5 Zach Johnson
+6 Lee Westwood
+6 Mike Weir
+6 Matt Kuchar