Íþróttadeild Morgunblaðsins og mbl.is heldur áfram að gramsa í myndasafni Morgunblaðsins og birta á mbl.is á laugardögum.
Englendingurinn Justin Rose er efstur þegar Masters-mótið er hálfnað en mótið stendur nú yfir í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Rose var sem sagt efstur eftir tvo keppnisdaga (36) á fimmtudegi og föstudegi en mótinu lýkur annað kvöld.
Justin Rose kom til Íslands sumarið 2003 og lék þá á Canon-mótinu á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Þá var hann ungur kylfingur, 22 ára, en hafði vakið mikla athygli fimm árum fyrr þegar hann hafnaði í 4. sæti á The Open Championship árið 1998.
Myndin er tekin á Hvaleyrinni en með Rose á myndinni eru hafnfirsku kylfingarnir Ólafur Már Sigurðsson og Björgvin Sigurbergsson sem léku með Englendingnum í ráshópi. Svo virðist sem Björgvin sé að lýsa aðstæðum fyrir Rose og gæti mögulega verið að segja: „Vertu ekkert að fara út í hraunið. Það er bara vesen.“
Myndina tók Kjartan Þorbjörnsson eða Golli sem myndaði fyrir Morgunblaðið og mbl.is í áratugi.
Justin Rose varð ólympíumeistari í golfi þegar íþróttin varð aftur hluti af Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016. Hann hefur einu sinni sigrað á risamóti í íþróttinni en hann sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2014. Hefur hann tvívegis hafnað í 2. sæti á umræddu Masters-móti, 2015 og 2017. Með velgengni sinni á golfvellinum í tvo áratugi hefur Rose unnið sér inn um 7 milljarða íslenskra króna.