Guðmundur Ágústi Kristjánssyni fataðist flugið á öðrum hring á Range Servant Challenge-mótinu í golfi sem hófst í Malmö í gær en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.
Guðmundur lék fyrsta hringinn í gær á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Hann lék hringinn í dag á 70 höggum og er því á samtals sex höggum undir pari eftir tvo hringi og í 34. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum og er kominn í gegnum niðurskurðinn.
Andri Þór Björnsson er úr leik, en hann lék fyrri hringinn á 72 höggum og seinni hringinn á 71 höggi og lýkur því leik á samtals einu höggi undir pari og í 103. sæti og er úr leik.
Haraldur Franklín Magnús náði sér ekki á strik á mótinu og lék hringina tvo á samtals sjö höggum yfir pari og var á meðal neðstu kylfinga.