Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði sér ekki á strik á þriðja hring á Range Servant Challenge-mótinu í golfi í Malmö í dag. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.
Guðmundur lék vel á fyrsta hring, 68 höggum, og var fjórum höggum undir parinu. Í gær lék hann á 70 höggum, en dagurinn í dag var erfiður og lauk Guðmundur leik á 76 höggum, fjórum höggum yfir pari og er því samtals á tveimur höggum undir pari.
Íslendingurinn er í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum en fjórði og síðasti hringurinn verður leikinn á morgun.
Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús léku einnig á mótinu en þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.