Guðmundur Ágúst Kristjánsson fór upp um tíu sæti á lokadeginum á Range Servant Challenge-mótinu í golfi í Malmö í dag. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu.
Guðmundur lék hringinn á 70 höggum, tveimur höggum undir pari, og lýkur leik á samtals fjórum höggum undir pari og í 45. sæti ásamt sex öðrum kylfingum. Besti hringur Guðmundar kom á fyrsta hring þegar hann lék á fjórum höggum undir pari.
Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús léku einnig á mótinu en þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi.