Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari kvenna í golfi, bætti sig um sjö högg á milli hringja á Opna ítalska mótinu á Evrópumótaröðinni sem hófst í Fubine á Ítalíu í gær. Þrátt fyrir það er hún úr leik.
Guðrún átti ekki góðan hring í gær og lék á 79 höggum, sjö höggum yfir pari. Þrátt fyrir að leika á 72 höggum í dag og ljúka leik á pari er hún úr leik.
Íslandsmeistarinn var þremur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn en hin franska Lucia Malchirand er í forystu á sjö höggum undir pari.
Guðrún leikur næst á Jabra Ladies Open-mótinu í Frakklandi sem hefst 3. júní næstkomandi.