Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék þriðja hringinn á Irish Challenge-mótinu í Dublin í dag. Mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Guðmundur lék hringinn á 73 höggum, tveimur höggum yfir pari.
Guðmundur er því á pari eftir fyrstu þrjá hringina en hann lék fyrsta hring á 69 höggum og annan hring á 71 höggi.
Íslenski kylfingurinn er í 19. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum fyrir lokadaginn á morgun. Norður-Írinn Dermot McElroy er í efsta sæti á átta höggum undir pari.