Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eru neðri hluta keppenda eftir fyrsta hringinn á Czech Ladies Open, Opna tékkneska kvennamótinu, á Evrópumótaröðinni sem hófst í Tékklandi í gær.
Guðrún lék á 74 höggum, tveimur yfir pari vallarins, og Ólafía á 75 höggum, þremur undir pari. Guðrún er í 81.-91. sæti og Ólafía í 92.-99. sæti af 123 keppendum.
Þær hófu keppni á öðrum hring eldsnemma í morgun en um þriggja daga mót er að ræða og niðurskurð eftir daginn í dag.
Nicole Broch Estrup frá Danmörku er efst á 65 höggum, sjö undir pari vallarins.