Ólafía, Guðrún og Birgir keppa á Nesinu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir mættu báðar í …
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir mættu báðar í Einvígið á Nesinu árið 2019 og þær eru báðar með í ár. mbl.is/Arnþór Birkisson

Einvígið á Nesinu, hið árlega góðgerðamót Nesklúbbsins, verður haldið í 26. sinn á Nesvellinum á Seltjarnarnesi á mánudaginn. 

Hefð er fyrir því að halda mótið á frídegi verslunarmanna og að vanda er nokkrum af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks.

Tíu kylfingar keppa með útsláttarfyrirkomulagi þannig að einn keppandi fellur út í hverri umferð þar til einn stendur eftir sem sigurvegari.

Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eru á meðal keppenda, einnig Perla Sól Sigurbrandsdóttir, nýkrýndur Evrópumeistari 16 ára og yngri, og Birgir Leifur Hafþórsson, sem var fremsti kylfingur landsins um árabil.

Keppendalistinn lítur þannig út:

Aron Snær Júlíusson
Birgir Leifur Hafþórsson
Bjarni Þór Lúðvíksson
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Gunnlaugur Árni Sveinsson
Hlynur Bergsson
Magnús Lárusson
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Perla Sól Sigurbrandsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir

Birgir Leifur Hafþórsson, fyrrverandi atvinnukylfingur, mætir til leiks á mánudaginn
Birgir Leifur Hafþórsson, fyrrverandi atvinnukylfingur, mætir til leiks á mánudaginn

Keppt er í þágu stuðningsfélagsins Einstök börn, sem er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 500 fjölskyldur í félaginu.

Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00 og verður fyrirkomulagið í þannig að fyrstu tvær holurnar í einvíginu verða leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hið hefðbundna “shoot-out” fyrir þá sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut.

Sjóðastýringarfélagið Stefnir er styrktaraðili Einvígisins á Nesinu í ár og mun í mótslok afhenda Einstökum börnum ávísun upp á eina milljón króna.

Sigurvegarar á mótinu frá upphafi:

1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson
2015 Aron Snær Júlíusson
2016 Oddur Óli Jónasson
2017 Kristján Þór Einarsson
2018 Ragnhildur Sigurðardóttir
2019 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020 Haraldur Franklín Magnús
2021 Guðmundur Ágúst Kristjánsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert