Sakar Tiger Woods um kynferðislega áreitni

Kylfingurinn Tiger Woods.
Kylfingurinn Tiger Woods. AFP/Ross Kinnaird

Fyrrverandi kærasta kylfingsins Tiger Woods, Erica Herman, hefur sakað hann um að hafa áreitt hana kynferðislega á meðan hún var starfsmaður hans. Segir hún Woods hafa neytt sig til að skrifa undir þagnarskyldu þegar samband þeirra hófst.

Samkvæmt fjölmiðlinum Sports Illustrated er dómsskjal í málinu sem sakar Woods um að hafa þvingað Herman, sem var starfsmaður Woods hjá veitingastaðnum hans í suður-Flórída þegar samband þeirra hófst, í að skrifa undir þagnarskyldu um samband þeirra eða vera rekin úr starfi. 

Það vill lögfræðingur Herman meina að sé kynferðislegt áreitni. „Woods var yfirmaður Herman. Yfirmaður sem setur starfsmanni sínum mismunandi vinnuskilyrði vegna kynferðislegs sambands er kynferðisleg áreitni,“ skrifaði Benjamin Hobas lögfræðingur Hermans í þeim skjölum sem Sports Illustrated hefur. 

Skýrslan kemur í kjölfarið á ágreiningi Woods og Herman þar sem Herman fór í mál við kylfinginn um heimili þeirra í Flórída. Þar sagði Herman að þegar þau stofnuðu búsettu árið 2017 hafi þau komist að munnlegu samkomulagi um að hún fengi að vera á heimilinu í fimm ár í viðbót en að kylfingurinn hafi þvingað hana út úr sameiginlegri búsettu þeirra. 

Þar krefst Herman 30 milljónir Bandaríkjadala frá Woods. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert