Erica Herman, fyrrverandi kærasta kylfingsins Tiger Woods, hefur lagt fram kæru gegn honum, þar sem hún sakar Woods um að hafa hótað að reka sig úr starfi samþykkti Herman ekki að skrifa undir samning um þagnarskyldu.
Herman var framkvæmdastjóri The Woods Jupiter, veitingastaðar á Palm Beach í eigu kylfingsins, fyrir og á meðan samband þeirra stóð.
Krefst hún þess að samningurinn, sem hún skrifaði undir árið 2017, verði felldur úr gildi á grundvelli nýrra laga um að fella megi slíka samninga úr gildi þegar kynferðisofbeldi eða kynferðisleg áreitni kemur til.
Samkvæmt lögmanni Herman hafi verið um kynferðislega áreitni að ræða þegar Woods hótaði að reka hana úr starfi samþykkti hún ekki að skrifa undir þagnarskyldusamning.
Lögmaður Woods segir engan fót vera fyrir ásökunum Herman.
Herman hefur einnig kært sjóðinn sem hefur til umráða setur í eigu Woods, sem hún dvaldi í um fimm ára skeið á meðan samband þeirra stóð.
Segir Herman að Woods hafi lofað sér að hún fengi að dvelja á setrinu í grennd við Palm Beach um ellefu ára skeið, en að henni hafi verið vísað úr því sex árum fyrr.
Krefst Herman þess að henni verði greiddar 30 milljónir Bandaríkjadala í bætur vegna brottvikningarinnar.
Í gögnum sem voru lögð fram síðastliðinn föstudag sakar Herman Woods um að láta lögmann kylfingsins sjá um að binda enda á ástarsamband þeirra í október síðastliðnum, eftir að Woods hafi logið að sér að þau væru á leið til Bahama-eyja yfir helgi í sameiningu.
Svo hafi ekki farið, lögmaðurinn hafi sagt Herman upp fyrir hönd Woods, rekið hana af setrinu og um leið reynt að fá hana til að skrifa undir annan þagnarskyldusamning, sem hún hafi neitað að gera.