Erfitt á fyrsta hring

Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Guðmundur Ágúst Kristjánsson Ljósmynd/Kristján Ágústsson

Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði sér ekki almennilega á strik á fyrsta hring á Soudal Open-mótinu, sem fram fer í grennd við Antwerpen í Belgíu.

Guðmundur lék fyrsta hringinn í dag á 72 höggum, einu höggi yfir pari. Hann er í 98. sæti, ásamt nokkrum öðrum kylfingum, og þarf að leika betur á morgun til að fara í gegnum niðurskurðinn og vinna sér inn keppnisrétt á tveimur síðustu hringjunum.

Íslenski kylfingurinn fékk fjóra skolla, þrjá fugla og ellefu pör á holunum átján. 

Mótið er hluti af DP World Tour, sterk­ustu at­vinnu­mótaröð Evr­ópu í karla­flokki, og fer fram dag­ana 11.-14. maí.

Guðmund­ur Ágúst tryggði sér keppn­is­rétt á mótaröðinni síðastliðið haust með frá­bær­um ár­angri á loka­úr­töku­móti henn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert