Guðmundur keppir í Belgíu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson tekur þátt á móti í Belgíu.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson tekur þátt á móti í Belgíu. Ljósmynd/European Tour

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GKG, er á meðal keppenda á Soudal Open-mótinu sem fer fram í grennd við Antwerpen í Belgíu og hófst í dag.

Mótið er hluti af DP World Tour, sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í karlaflokki, og fer fram dagana 11. - 14. maí.

Guðmundur Ágúst tryggði sér keppnisrétt á mótaröðinni síðastliðið haust með frábærum árangri á lokaúrtökumóti hennar.

Hann hóf leik í morgun klukkan 7 að íslenskum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert