Langt frá niðurskurðinum í Belgíu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er úr leik í Belgíu.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er úr leik í Belgíu. Ljósmynd/Kristján Ágústsson

Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson er úr leik á Soudal Open-mótinu, sem fram fer í grennd við Antwerpen í Belgíu, eftir tvo hringi.

Guðmundur náði sér ekki almennilega á strik á mótinu, því hann lék á 72 höggum í gær, einu höggi yfir pari, og á 76 höggum í dag, fimm höggum yfir pari. Hann lýkur því leik á sex höggum yfir pari og í 138. sæti.  

Var hann langt frá því að komast í gegnum niðurskurðinn, en kylfingar á tveimur undir pari rétt sleppa í gegn. Svíinn Simon Forsström er efstur á ellefu höggum undir pari.

Mótið er hluti af DP World Tour, sterk­ustu at­vinnu­mótaröð Evr­ópu í karla­flokki. Guðmund­ur Ágúst tryggði sér keppn­is­rétt á mótaröðinni síðastliðið haust með frá­bær­um ár­angri á loka­úr­töku­móti henn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert