Þrír kylfingar deila forystunni fyrir lokahringinn á AT&T Byron Nelson meistaramótinu í golfi. Mótið er hluti af PGA mótaröðinni og er haldið á TPC Craig Ranch golfvellinum í McKinney, Texas í Bandaríkjunum.
Það eru þeir Austin Eckroat, Zecheng Dou og Ryan Palmer sem eru efstir eftir þrjá hringi en þeir hafa allir spilað samanlagt á 16 höggum undir pari. Vincent Norrman, Jason Day, Si Woo Kim og næst efsti maður heimslistans Scottie Scheffler koma næstir á eftir þeim á 14 höggum undir pari.
Hvorki Austin Eckroat eða Zecheng Dou hafa náð að vinna mót á PGA mótaröðinni áður en Ryan Palmer hefur unnið fjögur mót, hans síðasti sigur kom á Zuric Classic meistaramótinu árið 2019.
Aðstæður á vellinum hafa verið góðar og spiluðu 23 af 24 efstu kylfingum mótsins völlinn undir pari í gær, sá eini sem spilaði ekki undir pari var Scottie Scheffler en hann spilaði á pari í gær og var verulega ósáttur með spilamennsku sína.
Lokahringurinn verður spilaður í dag og er ræst út frá klukkan 14 á íslenskum tíma.