Þau mögnuðu tíðindi urðu snemma á fyrri hluta fyrsta keppnisdags Opna bandaríska meistaramóts karla í golfi að tveir kylfingar hafa skilað inn skori upp á 62 högg.
Þar til í dag hafði engum tekist að leika betur en á 63 höggum í langri sögu opna bandaríska mótsins og raunar hafði það bara gerst einu sinni í sögu risamótanna fjögurra.
Opna bandaríska mótið hófst í dag í Los Angeles í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum. Ólíklegur kylfingur sló metið þegar Rickie Fowler lék á 62 höggum. Var hann á átta höggum undir pari vallarins sem ekki hefur verið notaður á Opna bandaríska í liðlega sjötíu ár. Fékk Fowler tíu fugla og tvo skolla á hringnum.
Fowler hefur ekki sigrað á risamóti á ferlinum en er mjög þekktur kylfingur enda var hann í fremstu röð fyrir nokkrum árum. Hann tapaði hins vegar áttum á golfvellinum í heimsfaraldrinum og féll langt niður heimslistann. Fyrir vikið hafði hann til dæmis ekki keppnisrétt á Masters síðustu tvö skiptin. Besti árangur Fowlers á Opna bandaríska til þessa er 2. sæti árið 2014. Hann hefur leikið nokkuð vel síðustu mánuðina og því voru vísbendingar um að hann gæti náð sér aftur verulega á strik.
Landi hans frá Bandaríkjunum Xander Schauffele skilaði einnig inn skori upp á 62 höggum um það bil hálftíma síðar. Fékk hann einfaldlega átta fugla og tíu pör. Eins og Fowler hefur hann nokkrum sinnum verið nálægt sigri á einu risamótanna fjögurra en ekki tekist en Schauffele er þó ólympíumeistari í íþróttinni. Besti árangur hans á Opna bandaríska er 3. sæti árið 2019.
Þar sem tímamismunur er mikill eru margir sterkir kylfingar ekki enn farnir af stað eins og Brooks Koepka og Rory McIlroy. Efsti maður heimslistans Scottie Scheffler hefur lokið leik í dag á þremur undir pari eða 67 höggum.
Hefð er fyrir því að leikið sé á erfiðum völlum á Opna bandaríska. Stundum hefur mótið unnist í kringum parið. Af skorinu í dag mætti ætla að völlurinn hjá Los Angeles Country Club sé léttur en hann telst nú ekki vera það og er til að mynd um 6.900 metrar. Brautirnar eru reyndar ekki mjög þröngar og því eiga kylfingarnar ágæta möguleika að vera á braut eftir upphafshöggin. Takist það hins vegar ekki eru alls kyns vandræði sem bíða og geta menn verið fljótir að fá 6 og 7 á skorkortið ef svo ber undir.
Veðrið er eins hagstætt og það getur verið sem spilar einnig inn í. Skýjað, hlýtt og nánast logn. Fowler og Schauffele komust í gegnum daginn með því að hitta brautir og flatir í langflestum tilfellum. Þar til í dag var Brendan Grace eini maðurinn sem leikið hafði á 62 á risamóti og gerði það á The Open Championship árið 2017.
Opna bandaríska er þriðja risamótið af fjórum á árinu. Jon Rahm sigraði á Masters og Koepka á PGA-meistaramótinu.