Lauk keppni í Finnlandi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/LET Tristan Jones

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur, er úr leik eftir tvo hringi á Ladies Open golfmótinu í Finnlandi en mótið er liður í Evrópumótaröðinni, þeirri sterkustu í álfunni.

Guðrún lék fyrsta hringinn í gær á 75 höggum, þremur undir pari vallarins, og hefði þurft að bæta sig um þrjú högg í dag til að komast áfram. Hún lék hins vegar annan hringinn á 79 höggum, sjö yfir pari.

Hún lauk því keppni á tíu höggum yfir pari og endaði í 120. sæti af 126 keppendum á mótinu.

Johanna Gustavsson frá Svíþjóð er með forystu fyrir lokahringinn á morgun en hún er á 12 höggum undir pari. Carmen Alonso frá Spáni er á 11 undir pari og Christine Wolf frá Austurríki á 10 undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert