Evrópa vann öruggan sigur á Bandaríkjunum í Ryder-bikarnum í golfi en lokadagurinn var leikinn á Marco Simone-vellinum í Róm á Ítalíu í dag.
Fyrir daginn í dag var Evrópa með tíu og hálfan vinnig gegn fimm og hálfum Bandaríkjanna. Þurftu Bandaríkjamenn því mikið til þess að snúa mótinu sér í vil sem hafðist ekki.
Rory Mcllroy og Viktor Hölvland báru sigur úr býtum í sínum einliðaleikjum í morgun og John Rahm gerði jafntefli gegn Scottie Scheffler.
Að lokum vann Evrópa með 16 1/2 vinningi gegn 11 og hálfum. Bandaríkjamenn hafa ekki unnið á útivelli í 31 ár eða síðan 1992.