Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklin Magnús fór frábærlega af stað á fyrsta hring á lokastigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina í golfi, sterkustu mótaröð Evrópu, í Tarragona á Spáni í dag.
Haraldur er sem stendur í efsta sæti mótsins ásamt þremur öðrum eftir að hafa leikið fyrsta hring á 66 höggum, fimm höggum undir pari Infinitum Golf-vallarins í Tarragona.
Á þessari stundu hafa aðeins 18 af 156 þátttakendum á úrtökumótinu lokið fyrsta hring og því gæti staðan eitthvað breyst.
Það breytir því ekki að byrjunin hjá Haraldi er með allra besta móti og ekki ósennilegt að hann verði á meðal þeirra efstu þegar allir kylfingar hafa lokið fyrsta hring.