Aron og Axel fyrstir eftir tvo hringi

Axel Bóasson
Axel Bóasson Sigurdur Unnar Ragnarsson

Annar hringur Korpubikarsins í golfi fór fram hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í dag. Aron Emil Gunnarsson (Golfklúbbur Selfoss) og Axel Bóasson (Golfklúbburinn Keilir) leiða fyrir lokahringinn, fjórum höggum undir pari.

Aron Emil lék á sjö höggum undir pari í dag eða á 64 höggum. Axel lék á 67 höggum eða fjórum undir pari. Aron Snær Júlíusson lék á sex höggum undir pari í dag og er einu höggi á eftir þeim Aroni Emil og Axel í þriðja sæti.

Í kvennaflokki er Ragnhildur Kristinsdóttir (GR) efst eftir góðan hring í dag. Ragnhildur lék á fjórum undir pari og er með þriggja högga forskot á Guðrúnu Brá Björvinsdóttur (Keili) í öðru sætinu. Pamela Ósk Hjaltadóttir (Golfklúbbur Mosfellsbæjar) er í þriðja sæti.

Stöðuna má sjá hér en lokadagurinn er á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert