Tiger Woods átti erfitt með sig eftir morðtilræðið gegn Trump

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP/Jared C. Tilton

Kylfingurinn Tiger Woods átti erfitt með svefn eftir morðtilræðið gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta og forsetframbjóðanda. 

Woods sagðist hafa fylgst vel með fréttaflutningi á leið sinni til Skotlands en hann keppir á Opna breska meistaramótinu sem hefst á Royal Troon-golfvellinum á morgun. 

„Við horfðum á ekkert annað á leiðinni hingað, þetta var löng nótt. Ég svaf ekkert í fluginu og mætti síðan bara út á völl,“ sagði Woods við breska ríkisútvarpið. 

Donald Trump sekúndum eftir árásina.
Donald Trump sekúndum eftir árásina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert