Eva með þriggja högga forystu

Eva Kristinsdóttir, til vinstri, er með forystu á Íslandsmótinu.
Eva Kristinsdóttir, til vinstri, er með forystu á Íslandsmótinu. Ljósmynd/Seth@golf.is

Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er með þriggja högga forystu í kvennaflokki eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í golfi sem hófst í morgun á Hólmsvelli í Leiru.

Eva lék hringinn á 69 höggum, tveimur undir pari, og fékk fjóra fugla á hringnum.

Næstar á eftir henni eru Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR og Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG sem léku á 72 höggum, einu yfir pari vallarins, og Helga Grímsdóttir úr GKG er síðan í fjórða sætinu á 73 höggum.

Alls keppa 57 konur á mótinu sem heldur áfram á morgun en þriðji og fjórði hringur eru leiknir á laugardag og sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert