Írinn efstur – stórstjörnurnar úr leik

Shane Lowry er kominn í efsta sætið.
Shane Lowry er kominn í efsta sætið. AFP/Andy Buchanan

Írinn Shane Lowry er efstur eftir tvo hringi á Opna mótinu í golfi, fjórða og síðasta risamóti ársins. Leikið er á Troon-vellinum í Skotlandi. 

Lowry lék annan hringinn í dag á 69 höggum, tveimur höggum undir pari, og er samanlagt á sjö höggum undir pari.

Daniel Brown, sem var óvænt efstur eftir fyrsta hring, er í öðru sæti ásamt Justin Rose á fimm höggum undir pari.

Þar á eftir er m.a. Scottie Scheffler, efsti maður heimslistans, á tveimur höggum undir pari.

Stórstjörnurnar Tiger Woods og Rory McIlroy áttu erfitt uppdráttar á mótinu og eru báðir úr leik eftir tvo hringi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert