Sló vallarmetið og tók forystu

Böðvar Bragi Pálsson sló vallarmetið.
Böðvar Bragi Pálsson sló vallarmetið. Ljósmynd/Seth@golf.is

Böðvar Bragi Pálsson átti stórgóðan annan dag á Íslandsmótinu í golfi á Hólmsvelli í Leiru í dag.

Böðvar gerði sér lítið fyrir og lék á 64 höggum, sló vallarmetið, og fór í forystu. Hann er á samtals tíu höggum undir pari eftir tvo hringi.

Aron Snær Júlíusson er fallinn niður í annað sæti en hann er aðeins einu höggi á eftir Böðvari.

Hákon Örn Magnússon er þriðji á átta höggum undir pari og Sigurður Arnar Garðarsson fjórði á sjö höggum undir pari.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert