16 ára í forystu á Íslandsmótinu

Eva Kristinsdóttir
Eva Kristinsdóttir Ljósmynd/setha@golf.is

Kylfingurinn Eva Kristinsdóttir úr GM leiðir á Íslandsmótinu í golfi eftir þrjá hringi eftir flotta frammistöðu í dag.

Eva er aðeins 16 ára og fór hringinn í dag á 69 höggum, líkt og hún fór fyrsta hringinn, sem er tveimur höggum undir pari. 

Hún og Ragnhildur Kristinsdóttir eru jafnar í forystu á samtals einu höggi undir pari. Hulda Clara Gestrsdóttir er þriðja á tveimur höggum yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert