Bandaríkjamaðurinn í forystu eftir þrjá hringi

Billy Horschel leiðir efir þrjá hringi.
Billy Horschel leiðir efir þrjá hringi. AFP/Andy Buchanan

Ameríski kylfingurinn Billy Horschel, er í forystu eftir þrjá hringi á opna breska mót­inu í golfi á Troon-vell­in­um í Skotlandi.

Hann endaði á fjórum undir pari en á eftir honum eru sex kylfingar, þeir Dan Brown, Justin Ronse, Xander Schauffele, Sam Burns, Russell Henley og Thriston Lawrence sem fóru allir á þremur höggum undir pari.

Horschel fór hringinn í dag á 69 höggum sem er tveimur undir pari við erfiðar aðstæður. Hann er númer 62 á heimslistanum svo hann leiðir nokkuð óvænt eftir þrjá hringi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert