Hulda og Tómas sigruðu

Tómas Eiríksson Hjaltested og Hulda Clara Gestsdóttir unnu Hvaleyrarbikarinn.
Tómas Eiríksson Hjaltested og Hulda Clara Gestsdóttir unnu Hvaleyrarbikarinn. mbl.is/Ólafur Árdal

Hulda Clara Gestsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigruðu í Hvaleyrarbikarnum sem lauk í Hafnarfirði í dag. Mótið var lokamótið á stigamótaröð GSÍ 2024.

Hulda Clara setti þar punktinn yfir i-ið á glæsilegu sumri hjá henni hér heima því hún varð einnig Íslandsmeistari í síðasta mánuði og sigurinn í Hvaleyrarbikarnum tryggði henni einnig stigameistaratitilinn.

Hulda lék á 76, 73 og 76 höggum. Hún tók forystuna á öðrum keppnisdegi og sigraði með fimm högga mun þegar uppi var staðið. Mosfellingarnir Eva Kristinsdóttir og Berglind Erla Baldursdóttir komu næstar. Þær léku báðar á 80 höggum í dag og hefðu þurft að gera betur á lokakaflanum í dag til að þjarma að Huldu sem sigraði í Hvaleyrarbikarnum annað árið í röð.

Eva Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Berglind Erla Baldursdóttir.
Eva Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Berglind Erla Baldursdóttir. mbl.is/Ólafur Árdal

Eva lék 16. holuna, sem er ný par 5 hola, á 8 höggum í dag og það reyndist dýrt. Á 16. brautina má segja að sameinaðar hafi verið tvær brautir, gamla tíunda og gamla ellefta, sem voru par 3 og par 4 holur. Brautin var tekin í notkun í sumar.

Berglind Björnsdóttir úr GR fór holu í höggi í mótinu. Sló hún draumahöggið á 12. holunni á öðrum keppnisdegi.

Tómas fékk fljúgandi start á fyrsta keppnisdegi þegar hann setti vallarmet á 65 höggum. Forskotið minnkaði þegar leið á mótið en Tómas hélt velli og sigraði með eins höggs mund. Hann lék samtals á 5 undir pari og hringina þrjá á 65, 71 og 75 höggum.

Breki Gunnarsson Arndal, Tómas Eiríksson Hjaltested, Jóhann Frank Halldórsson.
Breki Gunnarsson Arndal, Tómas Eiríksson Hjaltested, Jóhann Frank Halldórsson. mbl.is/Ólafur Árdal

Breki Gunnarsson Arndal úr GKG og Jóhann Frank Halldórsson úr GR komu næstir. Breki lék á 72, 69 og 71 höggi en Jóhann á 70, 68 og 74. Alls voru sjö kylfingar undir pari samtals í karlaflokki en engin í kvennaflokki.

Stigameistari karla varð Aron Snær Júlíusson úr GKG sem einnig er Íslandsmeistari og varð hann stigameistari í annað sinn.

Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara Gestsdóttir.
Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara Gestsdóttir. mbl.is/Ólafur Árdal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert