Gerði það gott í Svíþjóð

Andrea Bergsdóttir, til vinstri.
Andrea Bergsdóttir, til vinstri. Ljósmynd/Golf.is

Landsliðskylfingurinn Andrea Bergsdóttir náði flottum árangri í móti á LET Access-mótaröðinni í golfi um helgina en keppt var í Gotlandi í Svíþjóð.

Andrea hafnaði í sjötta sæti, sex höggum á eftir hinni sænsku Kajsu Arwefjall sem bar sigur úr býtum. Andrea lék þrjá hringi á samanlagt 203 höggum og endaði á þremur höggum yfir pari.

Andrea er efst íslenskra kvenna á stigalista áhugakylfinga.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru með keppnisrétt á mótaröðinni en voru ekki með að þessu sinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert