Guðmundur íþróttastjóri GKG

Haukur Már Ólafsson til vinstri og Guðmundur Daníelsson til hægri.
Haukur Már Ólafsson til vinstri og Guðmundur Daníelsson til hægri. Ljósmynd/GKG

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, hefur ráðið Guðmund Daníelsson sem Íþróttastjóra klúbbsins. Haukur Már Ólafsson hefur verið ráðinn sem fagstjóri íþróttasviðs GKG.

Guðmundur hefur starfað sem golfkennari og barna- og unglingaþjálfari síðan 2023 en starfaði áður fyrir Golfklúbb Borgarnes við þjálfun, kennslu, mótahald og rekstur klúbbsins.

Haukur Már tekur við nýrri stöðu fagstjóra íþróttasviðs en hann er fyrrverandi afrekskylfingur og þjálfaði að auki á árunum 2013-2019 í GKG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert