McIlroy fleygði kylfunni í vatnið (myndskeið)

Rory McIlroy var ekki ánægður með fyrsta höggið á 17. …
Rory McIlroy var ekki ánægður með fyrsta höggið á 17. holu á öðrum hring. AFP/Harry How

Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy missti stjórn á skapi sínu og fleygði kylfu sinni í vatnið á BMW-mótinu í úrslitakeppni PGA-mótaraðarinnar í gær.

McIlroy sló fyrsta högg sitt á næstsíðustu holu annars hrings á mótinu og fór það ekki eins og hann vildi með þeim afleiðingu að kylfa hans rataði í vatnið.

Norðurírinn sá fljótt að sér og óð út í vatnið til þess að ná aftur í kylfuna.

Hann er sem stendur á þremur höggum undir pari, tíu á eftir Adam Scott sem er í efsta sæti á 13 höggum undir pari.

Atvikið má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert