Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson verður með á lokaúrtökumóti sem hefst í dag fyrir Evrópumótaröðina í golfi á Spáni.
Guðmundur var ekki á meðal þeirra 25 efstu á öðru stigi úrtökumótanna og komst því ekki beint á lokaúrtökumótið.
Guðmundur var sjötti maður á biðlista á mótið en nú er ljóst að hann fær tækifæri til að tryggja sig á sterkustu mótaröð Evrópu.
Leiknir eru sex hringir á lokamótinu.