Guðrún komst áfram

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/LET Tristan Jones

Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst í dag í gegnum niðurskurðinn á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi í Marrakech í Marokkó.

Guðrún lék á 71 höggi í dag og er samtals á einu höggi yfir pari eftir fjóra keppnisdaga. Hún er í 65.-70. sæti af 154 keppendum en fyrstu 65 fara áfram og spila lokahringinn á morgun. Þá ræðst hverjar komast inn á Evrópumótaröðina 2025.

Ragnhildur Kristinsdóttir lék á 70 höggum í dag en endaði samtals á fjórum höggum yfir pari og var því þremur höggum frá því að komast áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert