Sonur Tigers fór holu í höggi

Feðgarnir Charlie og Tiger Woods við keppni í gær.
Feðgarnir Charlie og Tiger Woods við keppni í gær. AFP/Douglas P. De Felice

Charlie Woods, sonur goðsagnarinnar Tigers Woods, fór holu í höggi í fyrsta sinn á nýhöfnum ferli sínum í golfi um liðna helgi. Tók hann þá þátt í PNC-mótinu ásamt föður sínum.

Charlie, sem er einungis 15 ára gamall, fór holu í höggi á fjórðu holu í Orlando í Flórída í gær, en um er að ræða par þrjú holu.

Þátttakendur keppa með einum fjölskyldumeðlimi sínum og vildi svo til að Paddy Harrington, sonur Padraigs Harringtons sem hefur unnið þrjú stórmót á ferlinum, fetaði í fótspor Charlie Woods er hann fór holu í höggi í fyrsta sinn á ferli sínum á mótinu.

Paddy, sem er 21 árs, fór holu í höggi á áttundu holu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert