Golfsamband Íslands hefur valið Huldu Clöru Gestsdóttur og Gunnlaug Árna Sveinsson sem kylfinga ársins 2024. Þau leika bæði fyrir Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar.
Þetta er í fyrsta sinn sem Hulda Clara og Gunnlaugur Árni hljóta þessa viðurkenningu.
Hulda Clara Gestsdóttir:
Hulda Clara varð Íslandsmeistari í höggleik í annað sinn á Hólmsvelli í júlí. Hún náði góðum árangri fyrir Denver-háskólann í bandaríska háskólagolfinu þar sem hún sigraði í deildarkeppni skólans og hafnaði í 12. sæti í svæðiskeppni NCAA.
Hún gegndi lykilhlutverki með íslenska landsliðinu og lenti í 36. sæti á Evrópumóti einstaklinga í Finnlandi í júlí. Hulda Clara hóf árið í 604. sæti á heimslista áhugakylfinga en er núna í 188. sæti. Hún stefnir á atvinnumennsku á næsta ári þegar hún lýkur námi.
Gunnlaugur Árni Sveinsson:
Gunnlaugur Árni hóf nám við LSU-háskólann í Bandaríkjunum í ágúst. Hann sigraði á sterku háskólamóti í október en sýnt var frá mótinu í beinni sjónvarpsútsendingu á Golf Channel alla keppnisdagana.
Hann hafnaði í 2. sæti í öðru háskólamóti og var á meðal 25 efstu kylfinganna í öllum fimm mótum annarinnar. Hann var valinn á Fred Haskins-listann yfir bestu háskólakylfingana í Bandaríkjunum og var hann eini nýliðinn á listanum.
Gunnlaugur Árni lék fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í liðakeppni sem tryggði sér þátttökurétt í efstu deild á næsta ári. Jafnframt endaði hann í 9. sæti á opna breska áhugamannamótinu sem er eitt allra sterkasta áhugamannamót í heimi.
Undir lok árs var Gunnlaugur Árni valinn að keppa fyrir hönd Evrópu í Bonallack Trophy þar sem 12 bestu áhugakylfingar Evrópu keppa á móti 12 bestu áhugakylfingum Asíu og Eyjaálfu. Gunnlaugur Árni hóf árið í 962. sæti á heimslista áhugakylfinga en er núna í 118. sæti.