Atvinnukylfingurinn Nick Carlson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar náði því ótrúlega afreki að leika Lo Romero völlinn á 58 höggum af öftustu teigum. Íslenski landsliðshópurinn í golfi er um þessar mundir í æfingaferð á La Finca á Spáni.
Hópurinn samanstendur af landsliðskylfingum, atvinnukylfingum og þjálfurum en nú stendur yfir þriggja daga mót hjá hópnum. Annar keppnisdagur var í dag þar sem helmingur hópsins lék á La Finca og helmingur á Lo Romero.
Nick fékk sjö fugla, fjóra erni og einn skolla á hringnum. Hann sló beint ofan í holu af 55 metra færi á lokaholunni og tryggði sér þar með fjórða örn dagsins.
Myndskeið af þessu magnaða höggi má sjá hér:
Það eru afar fáir sem hafa leikið keppnishringi af öftustu teigum á 59 höggum eða færri, en Birgir Leifur Hafþórsson lék Garðavöll á Akranesi á 58 höggum af næst öftustu teigum árið 2010.