McIlroy fór holu í höggi

Rory McIlroy veifar til áhorfenda eftir að hann fór holu …
Rory McIlroy veifar til áhorfenda eftir að hann fór holu í höggi í dag. AFP/Ezra Shaw

Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy fór holu í höggi í annað sinn á ferli sínum þegar hann tók þátt í Pebble Beach Pro-Am í Bandaríkjunum, sem er hluti af PGA-mótaröðinni.

McIlroy hitti kúluna óaðfinnanlega á 15. holu, sem er par þrjú hola, fyrsta hrings á mótinu í Pebble Beach. Höggið var 109 metrar og snerti kúlan ekki grasflötinn; fór beint ofan í holuna.

Síðast fór hann holu í höggi á Travelers-mótinu árið 2023 og var það þar til í dag eina skiptið sem McIlroy hafði náð að fara holu í höggi á PGA-mótaröðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert