Helga best í Portúgal

ÍSLENSKA kvennalandsliðið í handknattleik varð í þriðja sæti á alþjóðlegu móti kvennalandsliða sem lauk í Portúgal á sunnudag. Helga Torfadóttir, leikmaður Víkings, var útnefnd markvörður mótsins.

 Íslenska liðið sigraði í einum leik á mótinu, en tapaði tveimur. Sigurleikurinn var gegn Grikklandi, 25:18, en liðið tapaði fyrir Sviss 15:25 og svo heimastúlkum á sunnudag, 20:21. Í þeim leik lék Helga mjög vel og varði m.a. fjögur vítaköst.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert