11 marka sigur í Svíþjóð

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik sigraði í gær Savehof, eitt sterkasta félagslið Svíþjóðar 35:24, á æfingamóti í Svíþjóð. Staðan í hálfleik var 15:9 fyrir Ísland. Í fyrradag tapaði íslenska liðið fyrir Svíum, 22:20, en í dag leikur það við Finna.

Mörk Íslands í leiknum skoruðu: Kristín Guðmundsdóttir 8, Ásdís Sigurðardóttir 6, Harpa Melsted 5, Inga Fríða Tryggvadóttir 4, Hrafnhildur Skúladóttir 4, Hafrún Kristjánsdóttir 3, Drífa Skúladóttir 3, Ragnhildur Guðmundsdóttir 1 og Hanna Stefánsdóttir 1. Þess má til gamans geta að Hrafnhildur Skúladóttir átti 25 ára afmæli í gær og hélt hún upp á daginn með því að vera besti leikmaður íslenska liðsins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert