Ragnhildur til FH-inga

Ragnhildur Guðmundsdóttir, landsliðskona í handknattleik, er gengin til liðs við FH en hún lék með danska fyrstudeildarliðinu Skive fyrri hluta vetrar. Ragnhildur er 22 ára gömul, rétthent skytta. Áður en hún fór til Danmerkur síðasta sumar lék hún með Haukum og spilaði þar í fjögur ár í meistaraflokki þar sem hún var í stóru hlutverki.

Þetta er mikill liðstyrkur fyrir lið FH sem hefur átt í erfiðleikum í vetur og er í áttunda sæti af níu liðum í deildinni með aðeins fimm stig eftir fyrstu 11 leiki sína.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert