Handknattleiksliði FH hefur borist góður liðsauki fyrir baráttuna við að komast upp í úrvalsdeild á næstu leiktíð. Arnar Freyr Theodórsson er genginn í raðir Hafnarfjarðarliðsins, þar sem hann lék á sínum yngri árum. Hann hefur spilað sem leikstjórnandi hjá Stjörnunni í Garðabæ síðustu ár auk þess sem hann spilaði með Mors-Thy í dönsku 1. deildinni hluta af síðasta vetri.