Átta marka sigur Íslands á Makedóníu

Karen Knútsdóttir skoraði 9 mörk í kvöld en hér er …
Karen Knútsdóttir skoraði 9 mörk í kvöld en hér er hún í leik gegn Rúmenum fyrr í keppninni. www.worldhandballmkd2008.com

Íslenska U20 ára landslið kvenna í handknattleik vann í kvöld öruggan sigur á Makedóníu, 39:27, á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Makedóníu. Ísland hafði yfirhöndina allan tímann og staðan í hálfleik var, 20:12.

Ísland leikur um 13. sætið gegn Japan á laugardaginn en íslenska liðið sem fór inn á mótið sem varaþjóð hefur staðið sig frábærlega.

Mörk Íslands: Karen Knútsdóttir 9/6, Hildigunnur Einarsdóttir 7, Auður Jónsdóttir 6, Rut Jónsdóttir 5, Sara Sigurðardóttir 3, Rebekka Skúladóttir 3, Sunna Jónsdóttir 2, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Hildur Þorgeirsdóttir 1, Þórey Rósa Stefánsdóttir 1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert