Ragnar tryggði Stjörnunni stig gegn Akureyri

Ragnar Helgason.
Ragnar Helgason. mbl.is/Kristinn

Ragnar Helgason tryggði Stjörnunni stig gegn Akureyri í N1-deild karla í handknattleik í kvöld með því að skora úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn. Lokatölur 28:28. Akureyri er með 14 stig í þriðja sæti deildarinnar en Stjarnan er með 5 stig í næst neðsta sæti. 

Ragnar skoraði alls 7 mörk fyrir Stjörnuna en Kristján Kristjánsson skoraði 6 fyrir heimamenn. Í liði Akureyrar var Oddur Gretarsson atkvæðamestur með 9 mörk þar af 5 úr vítum. Heimir Örn Árnason og Árni Þór Sigtryggsson skoruðu 5 mörk hvor fyrir Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert