Ísland „úr leik“ eftir hádramatík

Aron Pálmarsson er lykilmaður í íslenska liðinu.
Aron Pálmarsson er lykilmaður í íslenska liðinu. mbl.is/Kristinn

Danir tryggðu sér 33:32 sigur á Íslendingum í dag í lokaumferð milliriðla á EM karla, 20 ára og yngri, í handknattleik. Ísland komst því ekki í undanúrslit en leikur um 5.-8. sæti í mótinu. Úrslitamarkið kom á lokasekúndu leiksins. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

Heimir Óli Heimisson var markahæstur Íslendinga með 6 mörk, og þeir Ólafur Guðmundsson og Aron Pálmarsson skoruðu 5 mörk hvor, Oddur Gretarsson 4, Ragnar Jóhannsson 4, Örn Ingi Bjarkason 3, Bjarki Már Elísson 3, og Guðmundur Árni Ólafsson 2. Arnór Freyr Stefánsson varði um það bil 11 skot í markinu.

Jafntefli hefði dugað Íslendingum sem sýndu mikinn karakter með því að vinna upp fimm marka forskot Dana seint í leiknum. Þeir klúðruðu hins vegar málum á ögurstundu. Örn Ingi Bjarkason fékk boltann í góðu færi fyrir framan mitt markið en ákvað að spila honum frekar, til að láta tímann renna út, en Íslendingar fengu strax í kjölfarið dæmdan á sig ruðning. Danir þutu fram og náðu með naumindum að skora sigurmarkið.

Vonbrigðin voru því mikil hjá Íslendingum sem unnu glæstan stórsigur á Frökkum í gær.

Fylgst var með gangi mála í leiknum í dag og fréttin uppfærð eftir því sem tíminn leið, eins og sjá má hér að neðan:

13:25 Danir tryggðu sér sigur með marki á lokasekúndunni. Íslendingar ætluðu að láta tímann renna út og nýttu sér ekki að vera komnir í dauðafæri, heldur héldu sókninni áfram og fengu dæmdan á sig ruðning. Þvílík vonbrigði, og þau skína úr andlitum Íslendinganna sem komast þar af leiðandi ekki í undanúrslit. Þangað fara Danir.

13:23 Ísland búið að jafna metin, 32:32! Jafntefli dugar.

13:22 Það eru 2 mínútur og 30 sekúndur eftir af leiknum og staðan 32:21 Dönum í vil, en þeir voru að missa mann af velli í tvær mínútur!

13:21 Ísland jafnaði metin í 31:31 en Danir komust aftur yfir í næstu sókn. Spennan verður líklega óbærileg á þessum síðustu mínútum.

13:17 Enn halda Íslendingar Dönum í 30 mörkum og saxa á forskotið. Þrátt fyrir að hafa klúðrað einni sókn með skoti í þverslá voru okkar menn að minnka muninn í 30:29, og þar var að verki Heimir Óli Heimisson af línunni.

13:12 Nú taka Danir leikhlé þegar rúmlega tíu mínútur eru eftir af leiknum og staðan 30:28 þeim í vil. Íslendingar hafa skorað þrjú síðustu mörk, og voru að enda við að klúðra færi, og útlitið er orðið mun betra en fyrir fimm mínútum.

13:11 Oddur Gretarsson var að minnka muninn í 30:28!

13:09 Íslendingar eru komnir í mjög framliggjandi og sókndjarfa vörn sem virðist vera að skila árangri því staðan er orðin 30:27 og Ísland fékk færi til að minnka muninn enn frekar. Danir eru reyndar manni færri þessa stundina.

13:05 Íslendingar tóku leikhlé þegar seinni hálfleikur var rétt rúmlega hálfnaður enda Danir komnir með fimm marka forskot, 30:25. Munurinn hefur ekki verið meiri á liðunum í leiknum. Ef Ísland tapar kemst liðið ekki í undanúrslit.

13:03 Danir náðu þriggja marka forystu, 26:23, á 42. mínútu en það er mesti munur sem verið hefur á liðunum frá því á upphafsmínútunum. Núna er staðan orðin 28:25, og Ísland var að missa mann af velli í 2 mínútur.

12:54 Danir eru tveimur mörkum yfir, 23:21, en voru að missa mann af leikvelli í tvær mínútur.

12:48 Aron Pálmarsson skoraði fyrsta mark seinni hálfleiks og jafnaði metin í 18:18. Hann og Ólafur Guðmundsson skoruðu þrjú mörk hvor í fyrri hálfleiknum og voru markahæstir. Aron kom svo Íslandi í 20:19 skömmu síðar.

12:35 Íslendingar tóku leikhlé þegar um hálf mínúta var eftir af fyrri hálfleik og fóru svo í sókn sem var snörp og endaði með marki Ragnars Jóhannssonar. Danir höfðu hins vegar tíma til að bæta við marki á lokasekúndunni og hafa því eins marks forskot þegar liðin ganga til búningsklefa, 18:17.

12:28 Íslendingar léku manni færri í tvær mínútur og hleyptu þá Dönum aftur fram úr sér. Staðan er 14:13.

12:23 Heimir Óli kom Íslandi yfir í fyrsta sinn, 10:9, eftir um 20 mínútna leik. Danir jöfnuðu reyndar jafnharðan og það stefnir í spennandi leik.

12:18 Heimir Óli Heimisson jafnað metin fyrir Ísland í 8:8 og í kjölfarið tóku Danir leikhlé. Það eru 17 mínútur og 37 sekúndur búnar af leiknum.

12:13 Arnór Freyr Stefánsson var að verja vítakast og í kjölfarið skoraði Ragnar Jóhannsson sjötta mark Íslands, og jafnaði metin í 6:6. Útlitið er betra núna.

12:06 Íslenska vörnin varði þrjú fyrstu skot Dana en nú er staðan orðin 4:1 Dönum í vil. Aron Pálmarsson var að skora fyrsta mark Íslendinga. 

12:00 Leikurinn er hafinn. Það þarf varla að undirstrika mikilvægi leiksins, en strákarnir komast í undanúrslit með jafntefli eða sigri. Ekki eru margir áhorfendur í höllinni í Slóvakíu en þó heyrast hvatningaróp frá íslenskum stuðningsmönnum.

11:55 Leikmenn eru komnir út á gólfið og verið er að flytja þjóðsöngva þjóðanna.

11:45 Hægt á að vera að fylgjast með útsendingu frá leiknum með því að smella hér.

11:40 Ísland vann stórsigur á Frökkum í gær, 42:30, en hafði tapað fyrir Portúgal. Portúgalar unnu Dani og eru því með 4 stig í riðlinum og öruggir áfram. Frakkar eru með 0 stig og geta ekki komist áfram en Danir og Íslendingar hafa 2 stig, en Ísland er með betri markatölu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert