Sveinbjörn valinn bestur

Sveinbjörn Pétursson.
Sveinbjörn Pétursson. mbl.is/Þórir Tryggvason

Akureyringar sópuðu að sér viðurkenningum nú í hádeginu þegar kunngert var um val á liði umferða 8-14 í N1-deildinni í handknattleik. Markvörðurinn Sveinbjörn Pétursson var valinn besti leikmaðurinn, Atli Hilmarsson besti þjálfarinn og Akureyri fékk viðurkenningu fyrir bestu umgjörðina.


Vilhelm Gauti Bergsveinsson úr HK var valinn besti varnarmaðurinn og þeir Hlynur Leifsson og Anton og Gylfi Pálsson og  voru valdir bestu dómararnir.

Lið umferða 8-14 í N1-deildinni er þannig skipað:

Markvörður: Sveinbjörn Pétursson, Akureyri
Línumaður: Atli Ævar Ingólfsson, HK
Vinstra horn: Oddur Gretarsson, Akureyri
Hægra horn: Einar Rafn Eiðsson, Fram
Vinstri skytta: Heimir Örn Árnason, Akureyri
Hægri skytta: Ragnar Jóhannsson, Selfoss
Miðjumaður:
Ásbjörn Friðriksson, FH

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert