ÍR tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarkeppninnar í handknattleik karla með sigri á Selfossi, 28:26, á Selfossi.
Heimamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 14:11, en ÍR-ingar sneru blaðinu við í síðari hálfleik.
Davíð Georgsson var markahæstur hjá ÍR með 8 mörk. Atli Kristinsson og Hörður Bjarnason skoruðu sex mörk hvor fyrir Selfoss og voru markahæstir.
Auk ÍR er ÍBV 2, Grótta, Afturelding og Heimsliðið komin í 16-liða úrslit Eimskipsbikarsins en keppni verður haldið áfram á annað kvöld og á miðvikudagskvöldið.
FH, Valur og Akureyri sitja yfir í 32-liða úrslitum auk Harðar, Hauka og HK2.