Elísabet í Stjörnuna - Rakel og Jóna áfram

Elísabet Gunnarsdóttir er komin heim í Stjörnuna.
Elísabet Gunnarsdóttir er komin heim í Stjörnuna. mbl.is/Ómar

Elísabet Gunnarsdóttir, Rakel Dögg Bragadóttir og Jóna Margrét Ragnarsdóttir skrifuðu í dag undir samning við N1-deildar lið Stjörnunnar í handbolta en þetta kemur fram á vísir.is.

Elísabet, sem leikur á línunni, kemur til Stjörnunnar frá Íslandsmeisturum Fram sem vann einmitt Stjörnuna í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í vor. 

Hún er uppalin í Stjörnunni líkt og Rakel og Jóna Margrét og er ljóst að Garðbæingar mæta með lið sem er til alls líklegt í N1-deild kvenna næsta vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert