Alexander sneri sig á ökkla

Alexander Petersson sneri sig á ökkla eftir fimm mínútna leik …
Alexander Petersson sneri sig á ökkla eftir fimm mínútna leik gegn Dönum í kvöld. mbl.is/Eva Björk

Alexander Petersson sneri sig á ökkla snemma í síðari hálfleik í viðureign Dana og Íslendinga á fjögurra þjóða mótinu í Danmörku í kvöld. Hann kom ekkert meira við sögu í leiknum. „Ég held að þetta sé ekkert til þess að hafa áhyggjur af,“ sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari í samtali við mbl.is í kvöld.

„Við sjáum til hvernig Alexander hefur það í fyrramálið. En eins og staðan er núna tel ég ekki að ástæða sé til að hafa áhyggjur af honum,“ sagði Aron Kristjánsson, eftir eins marks sigur á Dönum í kvöld, 30:29, í Álaborg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert