Valsmenn geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld.
Fari Valsmenn með sigur af hólmi gegn ÍR-ingum í Austurbergi og Afturelding tapar fyrir Íslandsmeisturum ÍBV í Eyjum er ljóst að Valsmenn vinna deildarmeistaratitilinn. Þeir hafa þriggja stiga forskot á Aftureldingu þegar þrjár umferðir eru eftir.
Þrír leikir fara fram í deildinni í kvöld en leikirnir eru:
18.00 ÍBV - Afturelding
19.30 FH - Fram
19.30 ÍR - Valur