„Davíð gerði út um leikinn“

Jón Heiðar Gunnarsson línumaðurin reyndi hjá ÍR-ingum sagði eftir ósigurinn gegn Aftureldingu í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildarinnar að sóknarleikurinn hafi orðið liðið að falli.

„Við byrjuðum leikinn mjög illa sóknarlega séð og Davíð Svansson komst í mikinn ham í markinu. Þetta er bara einfalt. Davíð gerði út um leikinn fyrir þá,“ sagði Jón Heiðar við mbl.is eftir leikinn en allt viðtalið við hann má sjá í spilaranum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert