Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson hafa verið valdir til þess að dæma á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik sem fram fer í Danmörku í desember. Þetta verður í fyrsta sinn sem þeir félagar dæma á heimsmeistaramóti í handknattleik kvenna.
Anton Gylfi hefur dæmt á Evrópumótum karla og kvenna og heimsmeistaramóti karla í handknattleik en þá með öðrum meðdómarar. Þetta verður í fyrsta sinn sem Jónas dæmir á heimsmeistaramóti í flokki fullorðinna.
Keppnistímabilið, sem hefst síðsumars í handknattleiknum, verður það þriðja sem þeir félagar dæma saman en þeir félagar hafa á þessum tíma jafnt og þétt verið að færa sig upp á skaftið og fá stærri og stærri verkefni.
Íslenska landsliðið tekur ekki þátt í heimsmeistaramótinu í Danmörku og verða þeir Anton og Jónas væntanlega einu fulltrúar Íslands á mótinu.